Heiti verks: Líf í línum. Listasafnið á Akureyri 2001.
Efni: Hjartalínurit á pappír,gler.
Hann er Akureyringur. Í fjörutíu ár hefur hjarta hans slegið í takt við bæjarsálina. Hann er í ljósum jakka og dökkum buxum og gengur fram hjá Sjallanum.
Degi tekið að halla og léttir skuggar líða yfir andlit hans. Hann lætur hugann reika, hann á minningar úr Sjallanum einsog svo margir. Sjómannsstyttan, hugsar hann þegar hann gengur fram hjá Búnaðarbankanum, hvar er hún? Augu hans leita upp eftir áður óþekktum risa sem gnæfir yfir torgið.
Hann hefur ekki gert það upp við sig hvort honum líka þessar nýbyggingar. Heldur samt að hann taki þær í sátt. Hann gengur hægum skrefum yfir torgið einsog svo oft áður. Hann les nöfnin á húsum í kringum torgið. Venus, Amor, Perfect og guð má vita hvað. Svolítið erótiskt, hugsar hann og gengur fram hjá Borgarsölunni, stefnir inn göngugötuna. Kaffihús, verslanir, apótek; allt sem ég þarf.
Þegar hann beygir upp Grófargil gjóar hann augunum niður á pollinn og æskuminningar sækja á hann. Litlir snáðar á ísilögðum pollinum að reyna að komast yfir í Vaðlaheiði, á gúmmískóm. Hann minnist Kaupfélagsins þegar hann gengur upp gilið. Hann gengur fram hjá Ketilhúsinu og að Listasafninu, opnar dyr safnsins og gengur inn...