Veistu hvað mér líkar verst Jóhann. Sigríður horfir á manninn sinn liggja í brúna stóra plusssófasettinu. Það er kveikt á sjónvarpinu og hann lætur fara vel um sig. Heyrirðu hvað ég segi Jóhann, veistu hvað mér líkar verst.
Hann lítur á hana.
Hvað líkar þér verst Sigríður spyr hann.
Mér líkar verst að ég skuli hafa verið gift þér í tólf ár. Þú ert svo fullkominn Jóhann. Svo djöfull fullkominn, alltaf svo hundrað prósent, veist allt og skilur allt. Svo djöfull fullkominn að mér verður óglatt.
Ég meina, hvað hef ég fengið út úr lífi mínu með þér. Einmanaleikinn er gróinn fastur á andlitið á mér. Það geta allir séð að ég er óhamingjusöm, enda hef ég aldrei þekkt þig. Ekki einu sinni þegar við giftumst. Ég hef aldrei verið neitt, ekki neitt nema skugginn af þér. Aldrei sagt neitt gáfulegt, aldrei er hlegið að bröndurum sem ég segi. Ég hef aldrei svo mikið sem haft skoðun sem einhver hefur áhuga að heyra. Segi bara já og þá eru allir ánægðir. Þegi bara og þá eru allir ánægðir.
Sigríður er æst hreytir út úr sér orðunum.
Hún er svo jákvæð hún Sigríður segir fólk. Andskotinn að ég sé eitthvað jákvæð, þú sérð þá hvert það hefur leitt mig. Ég er bara jákvæð af því að ég segi aldrei neitt, hlusta bara.
Það er naumast segir hann.
Er þetta það eina sem þú getur sagt. Ég vildi að ég hefði aldrei gifst þér.
Elsku Sigríður mín við skulum ekki láta svona, ekki núna. Það er ekki viðeigandi að fara yfir lífshlaup okkar núna. Þú veist að þetta er ekki rétt hjá þér. Ég og annað fólk í kringum þig höfum allt aðra skoðun á þér.
Dyrabjallan hringir og Sigríður fer til dyra. Hann heyrir hana tala.
Ég er að koma segir hún við manneskju í dyragættinni.
Komdu í það minnsta og kveddu mig Jóhann segir Sigríður óstyrkri röddu.
Ég er að koma segir hann og stendur upp úr sófanum.
Manneskjan í gættinni horfir á þau taka utan um hvort annað og kyssast.
Ég veit ekki hvenær ég kem heim Jóhann segir Sigríður og þurrkar tárin af kinnum sínum.
Ég veit segir hann og kyssir hana, láttu þér bara batna.
Þú kemur örugglega fljótlega heim aftur segir manneskjan.
Mörgum gengur vel að sigrast á áfengissýki Sigríður mín. Ég er viss um að þú ert ein af þeim.
til baka