Í Guðs bænum Jóhann, hvað ertu að gera, hættu þessu, þú meiðir mig.
Vertu róleg Sigríður mín, ég geri þetta svo að þú sért óhult, svo eitthvað komi ekki fyrir þig, þú gætir slasað þig, eða jafnvel dáið, þú veist að það má ekki gerast.
En Jóhann minn er ekki of langt gengið að járna mig, hvað ætlarðu að láta mig sitja hérna lengi, járnaða við rúm.
Það sem eftir er af lífi okkar elskan, ég kem til með að hugsa vel um þig, þú átt eftir að þakka mér fyrir þetta.
Sigríður finnur köld handjárnin á vinstri úlnlið sínum, finnur hvernig þau særa hana, hún horfir á manninn sinn, Jóhann. Horfir á hann taka til mat á bakka, horfir á glaðlegt andlit hans.
Núna ertu örugg elskan, hérna er matur handa þér, ég er svo hamingjusamur. Núna veit ég að þú ert örugg.
En Jóhann, ég þarf að komast á klósettið, þú verður að losa mig.
Nei Sigríður mín, ég er búinn að sjá fyrir því, þú gerir það sem þú þarft að gera í þessa skál. Hún horfir á hann við rúmgaflinn með skál í höndunum. Þá rennurðu ekki til á flísunum á baðherberginu, þú veist að þær geta verið stórhættulegar.
Jóhann þú hlýtur að vera að grínast, það járnar engin konuna sína við rúm, jafnvel þó að hann sé hræddur um hana.
Viltu horfa á sjónvarp elskan segir hann og kveikir á því, ég held að það sé að byrja stórskemmtileg mynd um seinni heimstyrjöldina, ég skal meira að segja poppa. Þú vilt alltaf borða popp þegar þú horfir á bíómyndir, er það ekki. Sigríður horfir á eftir honum þar sem hann gengur út úr herberginu, hún reynir að smeygja hendinni úr handjárninu án árangurs, finnur bara meiri sársauka.
Hann hlýtur að vera að fíflast hugsar hún, hann hefur aldrei látið undarlega, aldrei gert neitt óeðlilegt. Hún heyrir í poppinu í örbylgjuofninum, heyrir Jóhann söngla.
Er myndin byrjuð, kallar hann.
Nei svarar Sigríður. Hún heyrir hvernig síðustu maískornin poppast, hann gengur inn með skál, brosandi út að eyrum.
Núna skulum við hafa það gott elskan.
Hafa það gott, ertu búinn að missa vitið Jóhann, heldurðu að ég ætli að sitja hérna handjárnuð upp í rúmi, éta popp og horfa á bíómynd um seinni heimstyrjöldina. Þú hlýtur að vera eitthvað verri, losaðu mig og hættu þessari vitleysu.
Elsku Sigríður mín, ég geri þetta fyrir þig, ég elska þig.
til baka