SÖGUR


KJÖRBÚÐIN

Andar kvöldsins liggja á myrkvuðum svefnherbergisglugganum, andardráttur Jóhanns líður um herbergið, sefandi, hægur. Sigríður liggur með opin augun og starir út í myrkrið. Líf mitt með Jóhanni segir hún ofur hljóðlega, líf mitt með Jóhanni.
Hún sofnar og sameinast andardráttum þeirra allra.
Jóhann er draumlaus, með barnið í brjósti.
Skyndilega er hann staddur í kjörbúð, skyndilega einsog í draumi stendur hann í kjörbúð. Það er kallað á hann, hann þekkir röddina, rödd Sigríðar.
Jóhann segir hún reiðilega, náðu í smjör og vertu röskur. Hann hleypur af stað eftir smjöri, finnur það og hleypur til hennar.
Jóhann, náðu í kartöflur skipar hún, hann hleypur, finnur kartöflur og kemur með þær.
Sigríður ávítar hann fyrir seinagang, fyrir leti, hann heyrir skipanir hennar. Heyrir hvernig orð hennar skera hann, meiða hann og hann hleypur eftir vörunum sem hún vill fá, hleypur hratt. Svitnar og finnur hvernig líkaminn er að gefast upp af þreytu. Stoppar við hreinlætisvörurekkann og kastar mæðinni.
Hvað ertu að gera Jóhann spyr Sigríður reið. Komdu þér úr sporunum, hún stendur þétt upp við hann. Hann finnur hvernig sársaukinn ágerist, allur líkaminn er aumur, finnur ekki fyrir fótunum, rödd hennar er inní hausnum á honum. Hann grípur um höfuð sér og fellur á gólfið, liggur á gólfinu og hljóðar.
Sér þegar hreinlætisvörurekkinn, brauðrekkinn og allir rekkar búðarinnar hvolfast yfir hann, sársaukinn er óbærilegur og með rekkunum kemur röddin enn sterkari, rödd Sigríðar.
Stattu upp Jóhann, stattu upp.
Andar kvöldsins hafa yfirgefið gluggann, nú er þar ekkert nema morgunskíman sem dansar á gegnsæju gleri gluggans. Jóhann stekkur á fætur.
Guð minn góður tautar hann, Guð minn góður, þetta var bara draumur, bara draumur.
Já segir Sigríður og rís upp úr rúminu. Auðvitað var þetta bara draumur, en hvernig fannst þér að þurfa að hlaupa þetta í alla nótt, eða fá alla rekkana yfir þig. Hann sér örla fyrir háðsglotti á vörum hennar. Þú heldur sjálfsagt að það sé gaman að versla, að það sé gaman að sjá alla þessa rekka hanga yfir sér einsog hrægamma, starandi og ógnandi, ó, nei.

 

til baka

 

 

Ef þú hefur spurningar eða athugasemdir hafðu samband við ella.