Fólk hefur á orði að aldrei hafi desember verið svona dimmur. Það hafði snjóað um miðjan nóvember í nokkra daga en svo ekki meir. Það eru flestir sammála um að þetta verði rauðustu jól sem það hefur upplifað en þó er ein og ein öldruð manneskja sem mundi eftir svona rauðum jólum.
Það vantar snjóinn til að birta til í sálartetrinu segir fólkið og stynur.
En einsog áður rennur aðfangadagur upp og fólkið lýsir upp heimili sín og götur: Og torg voru lýst upp með jólaseríum og allskyns ljósum.
Einsog áður er von á dansaranum og konu hans í jólamatinn hjá þéttholda konunni og myglaða manninum.
Þéttholda konan kveikir á kertum á hverju kvöldi svo myglaða manninum finnst nóg um og nefndi það við hana um miðjan mánuðinn að það væri bæði eldhætta af þessu og svo kostaði þetta óhemju peninga.
Það er ekki hægt að komast í gegnum jólamánuðinn öðruvísi en að tendra ljós hafði hún sagt við manninn sinn, og lifandi ljósin eru svo falleg sagði hún og kveikti á beigelituðu vanillukerti. Að kveikja á kertum gefur mér sálarró, en þú skilur það auðvitað ekki.
Nei hann skildi það ekki, það er auðvitað í lagi að kveikja á einu og einu kerti en kvöldið áður á þorláksmessu gekk hann um íbúðina og taldi 24 kerti. Og ekki nóg um það þá var þessi undarlega lykt um alla íbúð. Hann gekk um íbúðina og fann vanillulykt og jarðarberjalykt og lykt sem hann gat ekki hent reiður á hver væri. Jafnvel í baðherberginu sem annars var vel lyktandi af hreinsilegi eða einhverju þvíumlíku var nú lykt af blómum, að hann heldur. Og svo var ljós í hverju herbergi líka, einsog kertin nægðu ekki.
Hinn hefðbundni undirbúningur jólanna hafði staðið yfir hjá hjónakornunum og gerði hann það sem hún lagði fyrir hann, sem áður.
Þéttholda konan var satt að segja alls ekki þéttholda lengur. Hún hafði fyrr á árinu farið í danska kúrinn og með því lést um ein tíu kíló. Hún var unglegri eftir þennan kúr en hún hafði verið fyrir mörgum árum.
Hann horfði oft á hana þar sem hún stóð fyrir framan spegilinn og fetti upp á líkaman til að sjá aftan á sig. Aldrei hafði hún keypt eins mikið af fötum heldur og hann var farinn að sjá hana klæðast þröngum skyrtum. Hann kallaði þessar flíkur skyrtur en hún hafði margoft sagt honum að þetta væru blússur og að það væri hann sem gengi í skyrtum.
Um mitt árið hafði hún farið í aðgerð á brjóstunum á sér og látið flikka upp á þau einsog hún orðaði það við hann.
Hvaða máli skiptir það hvernig brjóstin á þér líta út þegar þú ert komin á þennan aldur hafði hann spurt hana.
Æji þú og þín þröngsýni stundi hún þá , þetta hefur með sjálfsmyndina að gera. Karlmenn skilja þetta ekki en mér finnst ég meiri kona eftir flikkið sagði hún og lyfti undir þau með velþóknun.
Þannig að á þessu ári hafði hún breyst úr þéttholda konu í granna brjóstgóða konu og var myglaði maðurinn alls ekki viss um að honum þætti þessi breyting til batnaðar, en hún var sýnilega ánægðari.
Myglaði maðurinn hafði ekki breyst mikið á árinu. Reyndar hafi bletturinn tekið upp á því að minnka svo hann gat hætt að nota kremið sem granna konan hafði keypt handa honum.
Það er ekki hægt að láta sjá sig með þér með þennan skaðræðisblett framan í þér hafði hún sagt. Og í hvert sinn sem þau fóru út fór hún inná bað með hann og huldi blettinn með kreminu.
Við erum nú bara að fara í Bónus sagði hann eitt sinn þegar hún smurði hann.
Það skiptir ekki máli svaraði hún og smurði.
Reyndar hafði hún farið með hann á hárgreiðslustofuna sem hún var vön að fara á í hverjum mánuði. Þar hafði hún rætt við unga stúlku um hárið á honum í óralangan tíma að honum fannst og loks komist að niðurstöðu um að hárið skyldi litað.
Mér finnst ekkert að því að hafa það svolítið grátt sagði hann.
Það væri kannski í lagi ef þú væri orðinn sjötugur en það ertu ekki.
Hann var lengi að venjast sjálfum sér eftir þessa aðgerð. Í staðinn fyrir grásprengd hár var hann nú kominn rautt hár.
Þegar hann kvartaði undan litnum og sagði að það væri rautt sagði hún að það væri alls ekki rautt. Það væri gyllt og að þessi litur væri óhemju vinsæll núna.
Allt var nú til reiðu fyrir jólaboðið. Rauðhærði maðurinn sem ekki lengur var myglaður og granna brjóstgóða konan sem ekki var þéttholda lengur standa í dyragættinni og taka á móti dansaranum og konu hans.
Það er ekki hægt annað en að dást að þér segir dansarinn þegar granna konan tekur við svarta ullarfrakkanum af honum og hengir hann upp. Um leið hnippir hún í rauðahærða manninn og segir honum að taka kápu konu dansarans.
Hann roðnar og tekur við kápunni.
Þú ert orðin svo lekkert, og svo grönn. Mikið er þetta falleg blússa sem þú ert í heldur hann áfram, er hún ný?
Já ég fékk hana í Akurliljunni.
Mér finnst alltaf svo fallegt þegar konur klæðast blússum segir dansarinn.
En hvað er að sjá þig segir hann þegar hann snýr sér að rauðhærða manninum, það er allt annað að sjá þig með hárið svona.
Já finnst þér það ekki, ég hef verið að segja honum þetta segir granna konan.
Ég á kannski eftir að venjast því segir rauðhærði maðurinn og lýtur undan.
En kona dansarans er ekki sammála. Mér finnst alltaf eitthvað sjarmerandi við grátt hár, það er svo virðulegt segir hún og horfir á rautt hárið.
Það getur vel verið en ég vil ekki að maðurinn minn líti út fyrir að vera tíu árum eldri en ég segir granna konan og dansarinn tekur undir þetta og segir að rauðhærði maðurinn verði að halda sig til fyrir svona lekkert konu. Um leið færir hann ljósan lokk frá andliti grönnu konunnar og brosir. Það er líka svo gaman að dansa við konu sem hefur svona mikinn þokka, það hefur svo mikið að segja fyrir þá sem horfa.
Þau ganga til stofu og einsog liðin jól býður rauðhærði maðurinn upp á drykk samkvæmt fyrirmælum konu sinnar og horfir í augu gestanna þegar hann talar við þau.
Gerið þið svo vel segir granna konan og þau setjast.
Rauðhærði maðurinn hafði ákveðið að ræða ekki þennan gjörning konu sinnar að setja disk fyrir þennan svokallaða leynigest. En diskurinn er á sínum stað og það virðist ekkert geta breytt því.
Ég vil segir brjóstgóða konan. Ég vil að þið takið því sem sjálfsagðan hlut að það sé aukadiskur á borðinu. Þið þurfið ekkert að vita fyrir hvern hann er en kannski kemur einhver til með að borða af honum en ekki verður það þessi jólin.
Þau borða þegjandi og hlusta á messuna.
Þetta eru þau rauðustu jól sem ég hef upplifað segir kona dansarans.
Já einsog hárið á mér segir rauðhærði maðurinn.
Það er ekki rautt segir granna brjóstgóða konan, það er gyllt.
til baka